2009
07.10

Um 5tinda

5 tindar… 5 landshlutar… ein helgi!
Síðla árs 2006 kom upp sú hugmynd að klífa 5 fjöll í 5 landshlutum á 5 dögum. Þetta þótti ekki nógu og djarft og var því breytt í 5 fjöll í 5 landshlutum á einni helgi.

5 Tinda hópurinn er sambland af vinnufélögum, vinum og kunningjum sem eiga það sameiginlegt að vera með öllu óvant fjallgöngufólk. Þegar farið var að þróa þessa hugmynd enn frekar, þá vildum við endilega að nota þessa ferð til þess að styrkja gott málefni og var fljótlega ákveðið að styrkja Sjónarhól.

Frá því í byrjun janúar þá hefur hópurinn lagt mikið á sig til að komast í gott fjallaform, enda vill enginn að bregðast málefninu. Vikulegar göngur á Esju, Boot Camp, sund og skokk er einungis hluti af því sem hópurinn hefur stundað reglulega til þess að komast í form.

Gífurlegur tími hefur farið í að undirbúa þetta verkefni, enda er að mörgu að huga þegar farið er með hóp í svona ævintýralega ferð, við fullyrðum að þetta hafi ekki verið gert áður á Íslandi. Fljótlega kom í ljós að þetta yrði mjög kostnaðarsamt og þá var leitað á náðir ýmissa fyrirtækja og vægast sagt höfum við fengið frábærar viðtökur og kunnum við styrktaraðilum okkar bestu þakkir. Án þeirra hefði þetta verkefni aldrei orðið að veruleika.

En takmark okkar er þó fyrst og fremst að Sjónarhóll fái sem mest út úr þessu verkefni og munum við leita á náðir fyrirtækja og landsmanna til að safna sem mestu um þessa helgi.

Önnur hlið á þessu verkefni er að vekja áhuga landsmanna á útiveru og við höfum stundum kallað þetta „Latibær fyrir fullorðna“. Við viljum sýna fram á það að allir geta farið að stunda útiveru, óháð aldri og formi. Það eru til fleiri aðferðir til að hreyfa sig en að hamast á hlaupabrettinu inni í sveittum æfingasal. Það er fátt betra en að njóta útiverunnar með fjölskyldunni.

Þó að 5 Tinda fjallgöngunni ljúki þann 11. Júní, þá erum við hvergi nærri hætt. Mörg spennandi verkefni eru á döfinni og við hvetjum ykkur til að fylgjast áfram með þessari síðu.

Leiðin :

island_merkt_vegur

Byrjað á Heiðarhorninu og haldið hringinn réttsælis

Vesturland – Heiðarhorn 1053m
Vestfirðir – Kaldbakur 998m
Norðurland – Kerling 1538m
Austurland – Snæfell 1833m
Suðurland – Hekla 1491m
  • Share/Bookmark

No Comment.

Add Your Comment

Comments are closed.