2010
02.04

Jæja, þá er komið að þriðju ferðinni með Spræk og 5Tindum, en nú er ferðinni heitið á Vífilsfell.

Mæting er kl.13 við litlu kaffistofuna laugardaginn 6. febrúar!

Þetta segir bókin Íslensk fjöll eftir Ara Trausta og Pétur Þorleifss. um Vífilsfell:
Hæð: 655m
Göngubyrjun: Við norðausturöxl fjallsins (c.a. 350m)
Gönguleið: Skriður, móbergsklappir
Uppgöngutími: 1,5-2,5 klst.
Gönguhækkun: 305m
Göngulengd: 3-4km
Leiðarmat: Leið á eitt helsta útsýnisfjall við Reykjavík.  Styðjast þarf við hendur efst í fjallinu. Nota ber uppleið sem niðurleið.

Í þessari göngu ætlum við að brydda upp á nýrri og skemmtilegri uppákomu. Í lok göngu ætlum við að hafa sameiginlegt köku og kruðerí hlaðborð. Allir koma þá með eitthvað að heiman, köku, pönnukökur,kleinur osfrv til að setja á borðið, einnig heitt kakó fyrir sig og sína. Eftir gönguna setjum við svo upp gott hlaðborð og verðlaunum okkur fyrir góða göngu.

  • Share/Bookmark
2010
01.31

Í dag fóru samtals 12 manns í aðra ferð Spræks.

Að þessu sinni var ferðinni heitið í náttúruperluna við Hveragerði, Reykjadal.

Algert logn var og smá frost, semsagt fullkomið gönguveður.
Lagt var af stað rétt fyrir kl.12 og vorum við komin að áfangastað okkar rúmri klukkustund síðar.
Við vorum þrjú sem böðuðum okkur í heitum læknum, ein fékk sér fótabað og restin af hópnum labbaði upp að skálanum sem brann á síðasta ári og borðaði nesti þar á veröndinni.

Eftir smá busl og nestispásu var haldið af stað tilbaka og vorum við komin aftur að bílunum tæpum þremur klukkustundum eftir að við hófum þessa ferð.

Þetta var alveg frábær ferð í yndislegu veðri í þessari náttúruperlu sem Reykjadalurinn er.

Næsta ferð verður eftir viku, en þá verður arkað á Vífilsfell.

Hér er trackið af leiðinni
Hér er hæðarprófíllinn

Myndir eru að sjálfsögðu komnar í Myndagallerýið

  • Share/Bookmark
2010
01.28

Jæja, þá er komið að ferð nr.2 hjá 5 Tindum og Spræk.

Ferðinni er heitið í Reykjadal næsta sunnudag (31.janúar)
Reykjadalur er náttúruperla rétt ofan við Hveragerði. Dalurinn er á háhitasvæði, fjöldi hvera er á svæðinu, mikil náttúrufegurð og upplifun að ganga þar um. Í dalnum renna saman heitur og kaldur lækur og þar er hægt að fara í náttúrubað í guðsgrænni náttúrunni.

Eins og alltaf er nauðsynlegt að vera vel búinn, klæða sig vel í hlý föt sem eru vatns og vindvarin.
Spáð er hæglætisveðri, en frosti, svo gott er að vera í ull næst sér, góðri flíspeysu,buxur, jakka,húfu og vettlinga.
Hafið einnig með ykkur nesti og drykk (hitabrúsi með heitum og sætum vökva kemur sér vel).
Gangan inn dalinn er um 3 km og búast má við að gangan taki um 3 tíma fram og til baka.

Þeir sem vilja nýta sér frábært tækifæri til að skella sér í náttúrubað hafi með sér sundföt og handklæði. Engin aðstaða (hús) er til að skipta um föt.
Sumir velja að vera í sundfötunum á göngunni eða skipta ófeimnir við bakkann.

Mæting er á Olís bensínstöðinni við Norðlingabrautina kl. 11 á sunnudag.

  • Share/Bookmark
2010
01.24

Í dag fóru 5 Tindar og Sprækur (gönguklúbbur TM) í fyrstu ferðina.

23 manns og 2 hundar voru mætt á hádegi.  Það var rigning en mannskapurinn lét það ekki á sig fá og lagði á brattann.

Gangan gekk vel og þegar leið á varð veðrið verra og verra.  Þegar við komum upp þá ákváðum við að láta það duga að ganga á “fyrri toppinn” enda var komið algert slagveður þarna uppi og engin ástæða að tölta áfram í beljandi rigningu og roki til að fara á sjálfann toppinn.

Hópmynd var tekin og svo arkaði hópurinn niður.

Allir skemmtu sér vel þrátt fyrir bleytuna og eftir viku þá er stefnan sett á Reykjadalinn.

Myndir eru að sjálfsögðu komnar í Myndagallerýið.

  • Share/Bookmark
2010
01.21

Þá er komið að fyrstu ferðinni með Spræk, gönguklúbb TM sem Maggi 5 Tinda maður og María konan mín eru í.

Farið verður í létta göngu á Úlfarsfell.  Gönguhækkun er um 195m og má gera ráð fyrir að þetta taki 1-2klst allt í allt.

Gangan byrjar kl.12 og er mæting við skógræktarsvæði Mosfellsbæjar er nefnist Hamrahlíð.  Auðvelt er að rata þangað, þetta er lítill skógur alveg við veginn til Mosó. Keyrt er fram hjá Bauhaus og aðeins lengra þar til þið sjáið lítinn skóg á hægri hönd við fótskör Úlfarsfells.
Þar eru bílastæði sem við leggjum af stað frá.

Munið að klæða ykkur eftir veðri, kannski taka með smá nesti og góða skapið!

Allir eru velkomnir með í þessa ferð.

  • Share/Bookmark
2010
01.20

Líkt og á síðasta ári, þá ætla 5 Tindar að fara í smá samstarf með gönguklúbbnum Spræk.  Starfsmenn Tryggingarmiðstöðvarinnar standa fyrir þeim gönguklúbb.  En í stjórn gönguklúbbsins eru nefnilega Maggi 5 Tinda maður og svo konan mín María Dögg (fjallageit með meiru).

Sprækur er nefnilega að undirbúa sitt fólk fyrir Hvannadalshnúksferð í vor og er kominn með prógramm af fjöllum til að fara á.  Ákveðið var að slá 5 Tindum og Spræk saman líkt og á síðasta ári á þessi undirbúningsfjöll.

Þau fjöll sem farið verður á eru m.a. Úlfarsfell, Vífilsfell, Hvalfell, Esjan, Hengill, Heiðarhorn og Syðsta-Súla.

Fyrsta fjall á dagskrá er Úlfarsfell.  En farið verður á það Sunnudaginn 24. janúar.

Ég mun birta frétt hér síðar í vikunni með öllum nánari upplýsingum.

Ívar.

  • Share/Bookmark
2009
12.21

5 Tindar óska ykkur öllum Gleðilegra Jóla og gæfuríks komandi árs.

Við viljum þakka ykkur samveruna á árinu sem er að líða og hvetjum ykkur til að fylgjast með á nýju ári.  Enda margt spennandi á döfinni að venju! :-)

Jólakveðja frá 5 Tindum!

  • Share/Bookmark
2009
12.20

Til hamingju Sigurgeir!

Þann 13. Desember var Jólakeppni Crossfit Iceland haldin.

Sigurgeir tók þátt í SC flokki (Almennur flokkur) og gerði sér lítið fyrir og sigraði á 22:25.  Sautján sekúndum á undan næsta manni!

Antilópan er vel að þessum sigri kominn og við óskum honum innilega til hamingju! :)

Sjá nánar á Crossfit Iceland

  • Share/Bookmark
2009
12.01

Í gærmorgun kl.07 var Biggi (Kölski) mættur á róðravélina í Boot Camp með það markmið að slá Íslandsmet í róðri.

Íslandsmetið var 103km á stillingu fjögur og sex.  Biggi tók sig til og reri frá kl.07:00-16:00 heila 105km á stillingu 10!
Þar með er ljóst að Boot Camp metið sem Steini Drumbur átti er fallið ásamt Íslandsmetinu!

Við óskum Kölska að sjálfsögðu til hamingju með þetta.  Það er það ekki á færi andlegra heilbrigðra manna að reyna við þetta, enda liggur þetta mjög vel við honum Bigga ;)

Enn og aftur til hamingju!  Allt er greinilega rúmlega fertugum fært.

  • Share/Bookmark
2009
11.08

Á laugardag fór fram Þrekmeistaramótið á Akureyri sem jafnframt var fjórða og síðasta mótið í Þrekmótaröðinni 2009.

Biggi, Drengsson, Leibbi og Sigurgeir kepptu allir í einstaklingsflokknum, en Bjarki þurfti að hætta við vegna veikinda.
Svona voru tímarnir:
8. Sigurgeir Andrésson 16:39:53
11. Birgir Skúlason 17:38:81
12. Leifur Dam Leifsson 17:44:62
22. Stefán Drengsson 19:28:17

Sigurgeir var því með besta tímann og hann aflitaði hárið á strákunum (einnig Bjarka) í pottinum um kvöldið!

Liðakeppnin var æsispennandi en 5 Tindar lentu í þriðja sæti á tímanum 12:33:34, einungis 9sek frá öðru sætinu og 21sek frá fyrsta.
Með þessu þá náðu 5 Tinda menn öðru sæti í Þrekmótaröðinni 2009 sem er glæsilegur árangur.

5 Tinda Valkyrjurnar kepptu einnig í liðakeppni kvenna og þær lentu í fimmta sæti á tímanum 15:04:91.
Flottur árangur þar!

Myndir eru að sjálfsögðu komnar í Myndagallerýið

  • Share/Bookmark