SNÆFELL Á AUSTFJÖRÐUM

Snæfell er hæsta staka fjall landsins, 1833 m yfir sjó. Það sést víða að og útsýnið af tindi þess er geysivítt á góðum degi. Það er nokkuð keilulaga, enda forn megineldstöð.

Það mun hafa myndazt síðla á ísöld og er því yngsta eldstöð Austurlands. Vegna þess, hve hátt það rís, hverfa efstu fannir þess ekki á sumrin.