KALDBAKUR
Við botn Haukadals er fjallið Kaldbakur(998m.y.s). Kaldbakur er hæsta
fjall á Vestfjörðum. Hann er sléttur að ofan og þakinn
frostsprengdu eggjagrjóti.
Auðgengt er á Kaldbak þegar farið er upp úr botni
Fossdals í Arnarfirði, eða Kirkjubólsdals í Dýrafirði.
Úr öðrum áttum er hann illfær eða ófær,
enda hrikalegur
að sjá úr mynni Haukadals og minnir á frændur
sína í suðri-Alpana.
Útsýn af fjallinu er yfir meginhluta Vestfjarðarhálendis,
suður á Snæfellsnes og víðar. Þar er varða
mælingarmanna. Í henni er geymdur kassi með gestabók
og ritföngum sem sunnudagsgöngugarpar skrifa komur sínar í.