HEIÐARHORN

Leiðin liggur frá bænum Efra-Skarði í Svínadal og uppá hæsta hluta Skarðsheiðarinnar sem kallast Heiðarhorn. Gengið er upp með Skarðsá með fjallið Skarðshyrnu á vinstri hönd.

Gegnið er áfram upp Skarðsdalinn og þar þarf að þvera hálf-leiðinlega skriðu en síðan er stefnan tekin til vinstri á Heiðarhornið sjálft. Leiðin er að langmestu létt og fyrir utan skriðuna leiðinlegu, hin ágætasta skemmtun.

Efst uppi er gígantískt útsýni.