2011
05.21

Fyrirlestur hjá Össur

Fyrir nokkru var stoðtækjaframleiðandinn Össur með heilsuviku á vinnustaðnum og þeir höfðu samband og báðu okkur um að halda fyrirlestur um 5 Tinda ferðina og hin ýmsu ævintýri okkar.

Að sjálfsögðu samþykktum við þetta.  Ég (Ívar Þ.), Biggi og Leibbi mættum á staðinn og héldum rúmlega klukkustundar langann fyrirlestur við góðar undirtektir.
Í honum var m.a. farið yfir 5 Tinda ferðina okkar, fjallað um rétt hugarfar, fuck-it factorinn og margt fleira.

Fyrirlesturinn snýst um að allir geta það sem þeir ætla sér, með réttu hugarfari, æfingum og hæfilegum skammti af kæruleysi :-)

Við 5Tinda menn höfðum mjög gaman af því að halda þennan fyrirlestur og erum alveg til í að endurtaka þennan leik ef önnur fyrirtæki/stofnanir/hópar hafa áhuga.  Ef svo, endilega hafið þá samband.

Henti inn nokkrum myndum frá fyrirlestrinum inn í Myndagallerýið.

  • Share/Bookmark

No Comment.

Add Your Comment