2010
11.05

5Tindar tóku þátt í 5×5 mótinu um síðustu helgi og var það síðasta mótið í Þrekmótaröðinni.

Sigurgeir keppti einnig í einstaklingskeppninni og endaði í 11. sæti og Kölski tók 13. sætið.  Helvíti flott hjá þeim!

5Tinda liðið endaði í 3 sæti í mótinu, flottur árangur þar!

Heildarúrslit í Þrekmótaröðinni voru þannig að í einstaklingskeppni þá endaði Sigurgeir í 7. sæti, 5Tindar enduðu í 3 sæti í liðakeppni og 5Tindar Goldmembers unnu +39 flokkinn.
Kölski endaði í 20. sæti í einstaklings en í 2. sæti í +39 flokknum.

Við óskum þeim að sjálfsögðu innilega til hamingju með árangurinn!

Í kvöld á ÍNN fer svo í loft 4 Ævintýrabox þátturinn, en í þessum þætti verður m.a. fylgst með 5×5 mótinu og svo auðvitað framhaldssaga 5Tinda.

Endilega tékkið á því!

  • Share/Bookmark