2010
03.26

Að tapa veðmáli…..

Drengsson og Addi, nýji liðsmaður 5Tinda gerðu með sér veðmál um daginn.

Veðmálið var að hvor myndi missa meiri fituprósentu á vissum tíma.  Svo fór að Drengsson tapaði veðmálinu.

Refsingin?  Fara 1000 ferðir í stiganum í Boot Camp.

Í dag var Drengsson að gera akkúrat það og hér eru myndir frá því.

Drengsson – 1
Drengsson – 2
Drengsson – 3
Drengsson – 4
Drengsson – 5

Lokatíminn er kominn, en hann var circa 10klst og 32mín að fara þessar 1000 ferðir!  Helvíti gott hjá drengnum!

Í Lífsstílsmeistaranum var annað veðmál í gangi milli tveggja 5Tinda manna, augljóslega tapaði einn þeirra veðmálinu og refsingin verður framkvæmd í hádeginu á miðvikudag.  Að sjálfsögðu verður það fest á filmu og frétt kemur um það hér í næstu viku! :)

  • Share/Bookmark
2010
03.21

Rétt upp úr hádegi laugardaginn 20. mars voru 6 manns samankomnir á bílastæðinu við Litlu Kaffistofuna.  Markmið dagsins var að fara á Hengil, nánar tiltekið á Vörðuskegga.

Veðrið var ágætt, lítið skyggni og smá vindur.  En við fórum upp Sleggjubeinsskarð, löbbuðum inn Innstadal þar til við komum að einum skála og þaðan fórum við upp hrygg og að Vörðuskegg og þar upp.

Ferðin var hin skemmtilegasta þrátt fyrir vind og smá hríð, en ekkert skyggni var þó af toppnum að þessu sinni.  Maður fer þá bara aftur i betra veðri! :-)

Hér er trackið af leiðinni
Hér er hæðarprófíllinn

Nokkrar myndir eru komnar í Myndagallerýið, en ég fann ekki litlu myndavélina mína svo ég tók bara nokkrar myndir á þá stærri.

  • Share/Bookmark
2010
03.17

Jæja, þá er Hengill kominn aftur á dagskrá!

Gönguhópur TM, Sprækur og 5 Tindar ætla á laugardaginn fara á Hengil, en gengið verður frá Sleggjubeinsskarði.

Mæting er kl.12:15 á bílastæðinu við Litlu Kaffistofuna!  Gönguleiðin er í heild um 11km og má gera ráð fyrir 4-5 tímum í þetta.

Endilega klæðið ykkur eftir veðri og sjáumst svo á laugardag!

  • Share/Bookmark
2010
03.17

5 Tindar tóku sig til og kepptu í Lífstílsmeistaranum núna um helgina.

Ég mun birta heildarúrslitin um leið og þau koma á Þrekmótssíðuna en í stuttu máli þá urðu 5 Tindar í 5 sæti í liðakeppninni.  Kölski vann +39 flokkinn bæði í einstaklings og liðakeppninni.

Aftur á móti var Leibbi með betri tíma en Kölski í einstaklingskeppninni og samkvæmt veðmáli þeirra á milli, þá þarf Biggi að lita hárið á sér grátt!  Fylgist með hér á síðunni! :)

  • Share/Bookmark