2010
02.27
ATH: Ferðinni hefur verið aflýst sökum vinds og færðar. Það verða um 12-15m/sek, austanátt og mikið fjúk á Hengilssvæðinu í dag, því var ákveðið að aflýsa ferðinni.
Jæja, er svolítið seinn að henda inn þessari frétt!
En á morgun er fjórða ferðin með 5Tindum og Spræk. Stefnan er sett á Hengil.
Hittingur er á Litlu Kaffistofunni kl.11 og þaðan söfnumst við saman í bíla og keyrum að Hellisheiðarvirkjun og löbbum upp Sleggjubeinsskarð, inn Innstadal og svo upp á sjálfann Vörðuskeggja.
Allir velkomnir með!
2010
02.21
Í dag voru samtals 14 manns og 2 hundar mættir á bílastæðið við Esjuna. Stefnan var sett á Gunnlaugsskarðið og þar yfir á Þverfellshorn og svo niður.
Það var heiðskírt, kalt og töluverður mótvindur alla leiðina upp. Það dró þó ekki úr mannskapnum sem arkaði upp hrygginn í Gunnlaugsskarði, upp skálina og svo yfir á Þverfellshorn. Útsýnið þarna uppi var stórkostlegt og í heildina var þetta alveg frábær ferð og gaman að sjá enn annan vinkil á Esjunni.
Ferðin tók rétt rúmlega 4 1/2 tíma en við gengum tæplega 12km í dag.
Hér er trackið af leiðinni
Hér er hæðarprófíllinn
Myndir eru að sjálfsögðu komnar í Myndagallerýið.
2010
02.17
Sunnudaginn 21.febrúar leggja 5Tindar og Sprækur af stað upp á Esjuna. Í þetta skiptið verður ekki farin hefðbundin leið upp á Þverfellshornið, heldur er stefnan sett á nærliggjandi skarð er nefnist Gunnlaugsskarð. Skarðið er einstaklega formfagurt, stórbrotið og liggur upp við tignarlegt
Kistufellið.
Lagt er af stað á fjallið frá Mógilsá, gengin hin hefðbundna leið að merkingu númer 4, þar er stefna tekin í austur í átt að skarðinu. Framhaldið ræðst af veðri og aðstæðum (hvort klaki eða hálka hamli för á hryggnum sem er í skarðinu)
Ef aðstæður eru góðar verður farið alla leið upp á brún Esjunnar og komið niður Þverfellshornið. Ef ekki, þá verður sama leið gengin tilbaka.
Reikna má um 2-3 tímum í gönguna, mest 4 tímum ef farið er upp á brún og niður Þverfellshorn.
Við munum einnig halda áfram þeirri skemmtilegu köku og kruðerí hefð sem hefur skapast hjá Spræk.
Svo allir eiga að mæta með eitthvað gott að hlaðborðið sem verður síðan borðað eftir gönguna.
Gott er að hafa líka heitan og sætan vökva í brúsa til að dreypa á með og setja yl í kroppinn með kruðeríinu.
Mæting er á N1 upp á Ártúnshöfða kl.11 sunnudagsmorguninn 21.febrúar.
Þar verður sameinast í bíla og fólk fylgist að upp að bílastæðinu við Mógilsá þar sem bakpokar verða axlaðir og lagt af stað á Esjuna.
2010
02.07
Á laugardag voru samtals 16 manns og 3 hundar mættir við Litlu Kaffistofuna. Framundan var ferð á Vífilsfellið í alveg ágætu veðri. Smá vindur, smá kuldi en ekkert til þess að kvarta undan.
Keyrt var inn Jósepsdalinn og svo var lagt af stað á brattann. Hópurinn var vel stemmdur og ferðin upp gekk mjög vel. Þegar komið var að móberginu, þá voru aðstæður þar ekki góðar, svellbunkar yfir öllu. Svo við fórum aðeins til hægri og sikk-sökkuðum upp brekkuna þar til við komum að haftinu.
Svo fórum við þaðan upp á topp og stoppuðum þar í stutta stund áður en við héldum niður á við.
Ferðin niður gekk einnig mjög vel. Við brydduðum upp á nýjung núna, fólk kom með allskyns kruðerí að heiman og svo þegar við komum aftur á bílastæðið, þá var maturinn settur í skottið á einum bíl og úr varð girnilegt hlaðborð með allskyns góðgæti.
Þetta var semsagt mjög góð ferð, ekkert verður farið um næstu helgi, en svo verður tilkynnt um aðra ferð bráðlega!
Hér er trackið af leiðinni.
Hér er hæðarprófíllinn
Myndir eru að sjálfsögðu komnar í Myndagallerýið.
2010
02.04
Jæja, þá er komið að þriðju ferðinni með Spræk og 5Tindum, en nú er ferðinni heitið á Vífilsfell.
Mæting er kl.13 við litlu kaffistofuna laugardaginn 6. febrúar!
Þetta segir bókin Íslensk fjöll eftir Ara Trausta og Pétur Þorleifss. um Vífilsfell:
Hæð: 655m
Göngubyrjun: Við norðausturöxl fjallsins (c.a. 350m)
Gönguleið: Skriður, móbergsklappir
Uppgöngutími: 1,5-2,5 klst.
Gönguhækkun: 305m
Göngulengd: 3-4km
Leiðarmat: Leið á eitt helsta útsýnisfjall við Reykjavík. Styðjast þarf við hendur efst í fjallinu. Nota ber uppleið sem niðurleið.
Í þessari göngu ætlum við að brydda upp á nýrri og skemmtilegri uppákomu. Í lok göngu ætlum við að hafa sameiginlegt köku og kruðerí hlaðborð. Allir koma þá með eitthvað að heiman, köku, pönnukökur,kleinur osfrv til að setja á borðið, einnig heitt kakó fyrir sig og sína. Eftir gönguna setjum við svo upp gott hlaðborð og verðlaunum okkur fyrir góða göngu.