2011
05.21
Hér efst í síðunni eru núna komnir tveir linkar, einn merktur Búnaðarleiga og annar merktur Fjallabúnaður.
Það er fyrirtækið Gúmmíbátar og Gallar sem flytja inn vörur frá Raveltik og Climbing Technology og eru að selja á áður óþekktu verði hér á landi.
Endilega tékkið á þessu!
2011
05.21
Fyrir nokkru var stoðtækjaframleiðandinn Össur með heilsuviku á vinnustaðnum og þeir höfðu samband og báðu okkur um að halda fyrirlestur um 5 Tinda ferðina og hin ýmsu ævintýri okkar.
Að sjálfsögðu samþykktum við þetta. Ég (Ívar Þ.), Biggi og Leibbi mættum á staðinn og héldum rúmlega klukkustundar langann fyrirlestur við góðar undirtektir.
Í honum var m.a. farið yfir 5 Tinda ferðina okkar, fjallað um rétt hugarfar, fuck-it factorinn og margt fleira.
Fyrirlesturinn snýst um að allir geta það sem þeir ætla sér, með réttu hugarfari, æfingum og hæfilegum skammti af kæruleysi
Við 5Tinda menn höfðum mjög gaman af því að halda þennan fyrirlestur og erum alveg til í að endurtaka þennan leik ef önnur fyrirtæki/stofnanir/hópar hafa áhuga. Ef svo, endilega hafið þá samband.
Henti inn nokkrum myndum frá fyrirlestrinum inn í Myndagallerýið.
2011
01.24
Ég skellti mér um helgina á ísklifursnámskeið hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum.
Stefnan var sett á Sólheimajökul þennan laugardagsmorgun, það var þoka og súld en samt ágætt veður.
Á þessu námskeiði var farið í gegnum helstu atriði trygginga í sigi og top rope við ísklifur og allskyns sniðugheit kennd. Svo fórum við í samtals 3 ísveggi til að klifra.
Sá stærsti var um 12-15 metra hár og ég get með sanni sagt að þetta var helvíti gaman!
Skellti inn nokkrum myndum í Myndagallerýið
2010
12.25

5 Tindar vilja óska ykkur öllum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs.
Við viljum þakka kærlega fyrir árið sem er að líða og án efa verður margt að gerast hjá okkur á komandi ári!
Jólakveðja frá 5 Tindum!
2010
12.16
Þá er komið að lokaþætti af Ævintýraboxinu í bili. Í þessum þætti verður mest fjallað um loka hluta ferðar 5Tinda manna upp á Mont Blanc í Frakklandi.
Hægt er að sjá alla þættina á www.aevintyraboxid.is og þar er einnig stikla úr nýjasta þættinum sem sýndur verður á ÍNN kl.21:30 á föstudagskvöldið þann 17. Desember.
Ég vil hvetja alla endilega til að fylgjast með!
2010
11.05
5Tindar tóku þátt í 5×5 mótinu um síðustu helgi og var það síðasta mótið í Þrekmótaröðinni.
Sigurgeir keppti einnig í einstaklingskeppninni og endaði í 11. sæti og Kölski tók 13. sætið. Helvíti flott hjá þeim!
5Tinda liðið endaði í 3 sæti í mótinu, flottur árangur þar!
Heildarúrslit í Þrekmótaröðinni voru þannig að í einstaklingskeppni þá endaði Sigurgeir í 7. sæti, 5Tindar enduðu í 3 sæti í liðakeppni og 5Tindar Goldmembers unnu +39 flokkinn.
Kölski endaði í 20. sæti í einstaklings en í 2. sæti í +39 flokknum.
Við óskum þeim að sjálfsögðu innilega til hamingju með árangurinn!
Í kvöld á ÍNN fer svo í loft 4 Ævintýrabox þátturinn, en í þessum þætti verður m.a. fylgst með 5×5 mótinu og svo auðvitað framhaldssaga 5Tinda.
Endilega tékkið á því!
2010
10.18
Þátturin Ævintýraboxið var sýndur um helgina á ÍNN, hann er núna kominn á netið og hægt er að finna hann á eftirfarandi slóð:
http://www.aevintyraboxid.is
Þættirnir verða allaveganna á dagskrá á hverjum föstudegi til jóla og 5Tinda sögunni verður gerð góð skil þar. Í fjórum síðustu þáttunum að mér skilst, verður sýnt frá ferð okkar á Mont Blanc. Það má klárlega enginn missa af þessu.
Annars er næsta verkefni 5Tinda manna 5×5 áskorunin sem fer fram í Vestmannaeyjum þann 30. október.
Allar nánari upplýsingar um mótið á www.threkmot.is
2010
10.08
Þann 15. október kl.21:30 verður nýr sjónvarpsþáttur sem heitir Ævintýraboxið sýndur á sjónvarpsstöðinni ÍNN.
Drengsson sér um þessa þætti, en þetta eru þættir um útiveru, hreyfingu og náttúru.
Inn í þetta blandast saga 5Tinda manna og m.a. sýnt frá för okkar upp á Mont Blanc.
Þetta er klárlega eitthvað sem enginn má missa af.
Sjá nánar á eftirfarandi slóð (m.a. trailer)
http://www.adventurebox.is/index.php?option=com_content&view=article&id=97&Itemid=21
2010
10.08
Sæl öll!
Við erum ennþá lifandi hér!
Vegna tímaskorts þá gátum við ekki haft 5 Tindar á 5 vikum prógrammið í haust, en við förum nú vonandi að gera eitthvað skemmtilegt.
Það er annars nóg á döfinni að venju.
5Tindar tóku m.a. þátt í Boot Camp mótinu um daginn. Antilópan lenti í 4. sæti í einstaklings keppninni og Kölski tók 3. sætið í +39 flokknum. Glæsilegt hjá þeim!
Í liðakeppninni lentu 5Tindar í 4. sæti og 5Tinda Goldmembers lentu í 2. sæti í +39 flokknum.
Að sjálfsögðu óskum við þeim til hamingju með þetta!
2010
06.05
Í dag fór fram CrossFit leikarnir í Þrekmótaröðinni (www.threkmot.is).
Kölski og Sigurgeir Antilópa tóku þátt í einstaklingskeppninni og 5Tindar og 5Tindar GoldMembers kepptu í liðakeppninni.
5Tindar lentu í 2. sæti í liðakeppninni og 5Tindar GoldMembers lentu í 1. sæti í +39 flokknum.
Sigurgeir lenti í 5. sæti og Kölski í 7. sæti í einstaklingskeppninni, en Kölski var þar með í 2. sæti í +39 flokknum.
Aldeilis frábær árangur hjá strákunum og við óskum þeim innilega til hamingju með þetta!
Myndir eru komnar í Myndagallerýið
Allar nánari upplýsingar er hægt að finna á www.crossfitleikar.is og www.threkmot.is